Velkomin(n) á vef Skyttunnar.
Tenglar

Fréttir
17. maí 2010 - 22:29
Berger kynnir nýja .338 kúlu.
Kæru skyttur.

Nú hefur Berger lokið við hönnun og smíði á fyrstu .338 caliber kúlunni. Hennar hefur verið lengi beðið meðal markskytta í USA.

Þessi kúla er nokkuð sérstök hvað varðar hönnun. Hún er 300 grain og er svokölluð Hybrid kúla. Það þýðir að hún er blendingur á milli "Secant" hönnunar sem hefur einkennt Berger kúlur hingað til og býður upp á mikla flughæfni, og svo "Tangent" hönnunar sem flestir aðrir hafa notað. Tangent hönnun er minna háð kúludýpt og má þá segja að Hybrid hönnun komi til með að sameina kosti beggja. Það verður gaman að sjá nánari prófanir á þessari kúlu.

Einnig er Berger að smíða 7mm 180 grain kúlu með Hybrid laginu.

Hér er myndband þar sem Eric Stecker yfirkúlusmiður hjá Berger fer yfir það nýjasta hjá Berger.
Object id #32

« Til baka